spænsk rannsókn vekur upp efasemdir um að hjarðónæmi sé vænleg leið til að takast á við heimsfaraldur kórónuveiru fleiri en sextíu þúsund tóku þátt í rannsókninni sem bendir til þess að einungis fimm prósent spánverja hafi þróað mótefni gegn veirunni að því er fram kemur í læknisfræðiritinu lancet 

hjarðónæmi næst þegar nóg af fólki smitast og veir­an hættir að lok­um að breiðast út um það bil áttatíu til níutíu prósent af fólks­fjölda þurfa að vera ónæm til að vernda einstakling sem hefur ekki sýkst

algengi COVID nítján mótefna var minna en þrjú prósent á strandsvæðum á spáni en hærra á svæðum þar sem margir höfðu sýkst

þrátt fyrir mikil áhrif COVID nítján á spáni er það mat okkar að veiran sé ekki út­breidd og út­breiðsla hennar greinilega ófullnægjandi til að veita hjarðónæmi segja höfundar rannsóknarinnar

það er ekki hægt að ná hjarðónæmi án þess að vera til­búin í mörg dauðsföll innan áhættu­hópa og ofálag á heilbrigðiskerfi í þess­um aðstæðum eru fjarlægðarráðstafanir og viðleitni til að bera kennsl á og einangra ný tilvik og þau sem smitaðir hafa komist í snertingu við nauðsynleg til að halda faraldrinum í skefjum

rannsóknin er talin vera sú stærsta sinnar tegundar á kórónuveirunni í evrópu en fleiri en tvöhundruð og fimmtíu þúsund hafa greinst með veiruna á spáni og tæplega þrjátíu þúsund fallið frá vegna hennar veiran virðist þó vera í rénun þar í landi
